Freedom SL fjallaskíðaskórnir frá Scarpa eru svokallaðir freeride skór sem gefa mjög góða svörun og stjórn á skíðunum í rennsli. Skórnir eru frekar léttir (1850 g., stærð 27.0) og það ásamt 27° hreyfingu á efri hlutanum gerir þá mjög þægilega á göngu. Skelin er gerð úr Pebax efni sem er 100% endurnýtanlegt efni sem heldur eiginleikum sínum jafnvel við köldustu aðstæður. Í Freedom SL skónum er Carbon lag steypt í botnstykkið sem gerir skóna stífari og skilar sér í betri stjórn á skíðunum. Léttir og vandaðir skíðaskór með Vibram sóla. Hægt er að skipta út Vibram sólanum út og setja sóla fyrir venjulegar bindingar á þessa skó.
Helstu eiginleikar: